Halli Reynis
Halli Reynis
Halli Reynis er trúbador af gamla skólanum. Í gegnum tíðina hafa komið út 7 diskar frá honum þar sem hann er ýmist með hljómsveit með sér eða einn með gítar og munnhörpu.
Árið 1993 gaf hann út Undir hömrunum háu og 1995 kom Hring eftir hring út. Tveimur árum síðar gaf hann út plötuna Trúbadúr. Aldamótaárið 2000 kom svo Myndir út með Halla og Þorvaldi Flemming. 2004 kom úr platan Við erum eins og á árinu 2006 gaf Halli út tvær plötur, Leiðin er löng og Fjögurra manna far.
Auk þess hafa lög eftir Halla komið fram á ýmsum safndiskum í gegnum tíðina.
2011 tók Halli þátt í Júróvision og komst í úrslit með lagið sitt Ef ég hefði vængi.
Textar skipa stóran þátt í tónlist Halla sem oft segja sögur af hinum ýmsum hliðum lífsins. Seinustu árin hefur Halli haft hljótt um sig og haldið fáa tónleika. Búast má við nýjum diski frá honum árið 2012 og ætlar hann að spila ný lög í blad við gamalt efni á tónleikum Reykjavík folk festival.
Með Halla á tónleikunum spilar Jón Skuggi á kontrabassa. Halli og Jón hafa spiluðu saman frá árinu 2004 – 2006 en aldrei tveir saman á sviði heldur með hljómsveit. Jón Skuggi hefur í gegnum tíðna komið víða við. Hann hefur verið einn fremsti hljóðmaður Íslands og starfað með mörgum hljómsveitum sem bassaleikari m.a. Langa Sela og Skuggunum, Rússibönum og fjölmörgum listamönnum. Jón hefur rekið hljóðver í mörg ár og tekið upp fjölmarga geisladiska m.a. með Halla.