Kerala
Kerala
Hljómsveitin Kerala var stofnuð veturinn 2011. Meðlimir eru tónlistarmenm sem allir hafa fengist við ýmsa gerð tónlistar í gegnum tíðina.
Þeir sameina krafta sína og reynslu í tónlistarhrærigraut ættaðan úr ýmsum áttum, meðal annars Indlandi og Tyrklandi. Kerala byggir einnig tónist sína á íslenskri tónlist frá fimmtándu öld sem þeir setja í eigin búning.
Hljóðfæraskipan er langt frá því að vera hefðbundin en þeit félagar leika á ýmis hljóðfæri sem eiga rætur sínar að rekja í austur hluta heimsins. Diskur með hljómsveitinni er á næsta leiti, áætlaður útgáfu mánuður er mars 2012.
Meðlimir eru Kerala eru Páll E. Pálsson bassi/söngur, Ásgeir Ásgeirsson gítar/saz/söngur og Steingrímur Guðmundsson percussion/söngur.

![]()








