South River
South River Band
Í stofunni á Syðri-Á um verslunarmannahelgi 2000 hittust fyrir nokkrir frændur og sveitungar af Kleifum. Söngbók var dregin fram og spilað og sungið heila nótt. Síðan hefur söngurinn ekki þagnað enda var almennur söngur hin eiginlega undirstaða samstarfsins í upphafi.
Í South River Band ríkir sú stefna að spila á órafmögnuð hljóðfæri og tónlistina má flokka sem heimshornatónlist. Á efnisskrá má finna finnska polka, sænska hambóa, suður ameríska sveiflu og bluegrass frá norður ameríku og austur evrópska gleðitónlist. Sumt er vel þekkt en helmingur tónlistarinnar eru frumsamin lög og textar. Á Reykjavik Folk Festival 2012 skipa nú þeir Ólafur Baldvin Sigurðsson (mandolín), Magni Friðrik Gunnarsson (gítar), Jón Kjartan Ingólfsson (kontrabassi), Matthías Stefánsson (fiðla og gítar) og Helgi Þór Ingason (harmonika). Allir leggja þeir sitt af mörkum í söng.

Myndin var tekin í desember 2011 þegar saman komu núverandi meðlmir South River Band og þeir Kormákur Þráinn Bragason og Grétar Ingi Grétarsson sem eru í fríi. Guðmundur Benediktsson er í sjúkraleyfi.








